Fasteignagjöld af hesthúsum hækka
Á fundi Byggðaráðs Skagafjarðar í síðustu viku var ákveðið hvernig skattar og gjöld verði innheimt við álagningu fasteignagjalda árið 2012. Sú breyting varð að undir C-flokk falla nú gripahús sem áður voru í A-flokki og eru á skipulögðum svæðum í þéttbýli. Hér er einkum um hesthús að ræða og hækkar skatturinn úr 0,50% í 1,65% af fasteignamati.
Aðrar breytingar frá fyrra ári eru þær að ef upphæð heildarálagningar pr. gjaldanda nær ekki 23.000 kr. þá er einn gjalddagi, 1. febrúar 2012 en upphæðin var 20.000 kr. í fyrra. Einnig er breyting á aldursmörkum vegna útsendingar álagningarseðils sem var 60 ár, en verður 65 ára. En samkvæmt heimildum Feykis geta allir fengið pappírsútgáfu ef óskað er.
- Gjaldskrá fasteignagjalda árið 2012
- Fasteignaskattur A-flokkur 0,50%
- Fasteignaskattur B-flokkur 1,32%
- Fasteignaskattur C-flokkur 1,65%
- Eins og fyrr sagði falla nú gripahús sem áður voru í A-flokki og eru á skipulögðum svæðum í þéttbýli undir C-flokk en það er gert í samræmi við úrskurð Yfirfasteignamatsnefndar þar sem kærð var álagning fasteignaskatts á hesthús í Sveitarfélaginu Árborg en komst að þeirri niðurstöðu að hesthús í þéttbýli beri að skattleggja á þennan hátt.
- Lóðarleiga íbúðarlóða 1,50%
- Lóðarleiga atvinnulóða 2,50%
- Leiga beitarlands 0,50 kr/m2
- Leiga ræktunarlands utan þéttbýlis 0,90 kr/m2
- Leiga ræktunarlands í þéttbýli 1,25 kr/m2
- Gjaldskrá nr. 1069 fyrir fráveitugjald og tæmingu rotþróa í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 20. desember 2006 er óbreytt.
Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði átta, frá 1. febrúar 2012 til 1. september 2012. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 23.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2012. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga, 1. maí 2012, séu þau jöfn eða umfram 23.000 kr.
Álagningarseðlar fasteignagjalda 2012 verða sendir í pappírsformi til allra lögaðila og gjaldenda sem eiga lögheimili utan sveitarfélagsins og þeirra gjaldenda sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og eru 65 ára og eldri. Gert er ráð fyrir að aðrir gjaldendur nálgist rafræna útgáfu álagningarseðlanna í Íbúagátt sveitarfélagsins og á vefsíðu island.is, nema þeir óski sérstaklega eftir pappírsútgáfu. Þessi tilhögun verði auglýst með góðum fyrirvara í staðarblöðum og á heimasíðu sveitarfélagsins.