Fékk silfurverðlaun á Evrópumóti ungmenna
Húnvetningurinn Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir keppti á Evrópumóti ungmenna í Herning í Danmörku í síðustu viku og hreppti þar 5. sætinu í -72 kg flokki. Hún lyfti samtals 432,5 kg sem er Íslandsmet unglinga í hennar þyngdarflokki.
Mbl.is greinir frá því að Guðrún Gróa hafi fengið silfurverðlaun í bekkpressu og var það hennar besti árangur á mótinu. Þar lyfti hún mest 112,5 kg sem er nýtt Íslandsmet í bæði opnum flokki og flokki unglinga.
Guðrún Gróa lyfti 155 kg í hnébeygju og í réttstöðu lyfti hún mest 160 kg. Hún reyndi við 167,5 kg, sem hefði fært henni bronsverðlaun í samanlögðu, en samkvæmt mbl.is tókst það ekki þrátt fyrir mikla baráttu.