Félagsmót og úrtaka

Úrtaka hestamannafélaganna í Skagafirði fyrir Fjórðungsmót 2013 á Kaldármelum verður haldin á Vindheimamelum daganna 15.- 16. júní nk. Samhliða úrtökunni verður sameiginlegt félagsmót Stíganda og Léttfeta.

Keppnisgreinar:
A-flokkur, B-flokkur, Ungmennaflokkur, Unglingaflokkur, Barnaflokkur, Tölt og 100 metra skeið. Skráning fer fram á netfangið badboy@simnet.is fyrir miðvikudaginn 12. júní.

Öll hross í úrtökunni þurfa að vera skráð í Worldfeng og örmerkt. Knapar þurfa því að mæta í fótaskoðun með útprentað blað úr Worldfeng eða rauðbleika afritið frá örmerkjaranum.

Fótaskoðunarmenn munu vera með örmerkjalesara/skanna og sannreyna hvort rétt hross sé skráð til keppni.

Fleiri fréttir