Ferð í Ingólfsskála
Ferðafélag Skagfirðinga fyrirhugar bílferð upp í Ingólfsskála laugardaginn 17. ágúst ef næg þátttaka fæst, það er lágmark tíu manns, og sæmilega viðrar. Lagt verður af stað frá Faxatorgi kl 10:00 og komið heim síðdegis sama dag.
Fararstjóri í ferðinni verður Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 862-5907 (Ágúst).