Ferðaáætlun FFS sumarið 2014
Ferðafélag Skagfirðinga hefur gefið út ferðaáætlun sína fyrir sumarið. Boðið verður upp á þrjár gönguferðir og bílferð í Ingólfsskála. Ferðirnar verða allar nánar auglýstar þegar nær dregur en áætlunin lítur svona út:
21. júní Hefðbundin Jónsmessuganga í Glerhallarvík.
Þátttakendur aka á eigin bílum út að Reykjum. Gengið af stað kl 21. Grettiskaffi opið. Fararstjóri: Hjalti Pálsson.
5. júlí Gönguferð á Kaldbak í Sæmundarhlíð.
Farið á einkabílum fram að Sólheimum í Sæmundarhlíð og gengið þaðan. Farið frá Faxatorgi kl. 10:00. Fararstjóri: Trond Olsen.
9. ágúst Gönguferð suður Laxárdal í Trölla.
Gengið til byggða um Kálfárdal. Þátttakendur koma sér sjálfir að Illugastöðum í Laxárdal. Um 6-7 klst. Göngutími. Brottför frá Faxatorgi kl. 9. Fararstjóri: Ágúst Guðmundsson.
30. ágúst Bílferð í Ingólfsskála.
Farið á einkabílum sem stjórn FFS leggur til frá Faxatorgi kl. 9. Gist í Ingólfsskála. Komið heim á sunnudegi.