Ferðafélagið heldur aðalfund
feykir.is
Skagafjörður
29.11.2013
kl. 16.13
Aðalfundur Ferðafélags Skagfirðinga verður haldinn í kvöld kl. 20. Fundarstaður er húsnæði Skagfirðingasveitar við Borgarröst 1 á Sauðárkróki. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og eru allir velkomnir.
Meðfylgjandi mynd sýnir meðlimi Fjallatoppafélags Íslands og eru þar galvaskir Ágúst Guðmundsson, Birgir Rafnsson, Ingvar Gýgjar, Eiríkur Hansen, Hróbjartur Jónasson og Þórhallur Ásmundsson.