Ferðamenn fastir á Lágheiði

Björgunarsveit var kölluð út í nótt til að aðstoða erlenda ferðamenn, sem sátu í föstum bíl sínum á Lágheiði, á milli Fljóta og Ólafsfjarðar.

Ekkert amaði að ferðamönnunum og var bíll þeirra dreginn til byggða, en mikill snjór enn á heiðinni og hefur hún ekki verið rudd, enda liggur alfaraleið nú um Héðinsfjarðargöng.

Varað er við ófærð á heiðinni Ólafsfjarðarmegin og við Ketilás í Fjótum er skilti sem gefur til kynna að hún sér ófær.

Fleiri fréttir