Ferðaþjónustuaðilar á ferðinni
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði hélt í sína árlegu skemmtiferð þriðjudaginn 8. október síðast liðinn.s.l. Ferðina notar félagið til að kynna sér starfsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu á svæðinu, sjá hvað er í boði hjá öðrum og til kynnast starfsemi hvers annars. Hildur Magnúsdóttir, sem er í stjórn félagsins, sendi Feyki stutta ferðasögu og meðfylgjandi myndir.
Við byrjuðum á kynningu á Gestastofu Sútarans og tóku þær mæðgur Sigga og Steinunn vel á móti hópnum með skemmtun, fræðslu og fróðleik, auk þess að bjóða uppá veitingar úr sjávarfangi.
Næst var haldið sem leið lá, austur yfir Héraðsvötn og hjónin Gunnar og Sólveig á Samgönguminjasafninu heimsótt og fengum við skemmtilega leiðsögn um safnið auk þess að fá að kíkja í vinnustofu Sólveigar, en þar vinnur hún ýmsa vöru úr gleri.
Því næst var haldið í Fljótin þar sem hjónin Hjördís og Jóhannes á Brúnastöðum voru heimsótt og hjá þeim skoðuð aðstaðan, bæði gistimöguleikar og samkomusalur. Hjördís tók á móti hópnum með heitri eplaköku með karamellusósu og rjóma og kaffi með, að hætti Fljótamanna.
Að lokum var svo farið aðeins út fyrir Skagafjörðinn og Siglufjörður heimsóttur og fékk hópurinn tækifæri til að kynna sér þá uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað í ferðaþjónustu. Tók Finnur Yngvi, verkefnastjóri Rauðku, vel á móti hópnum og fengum við að sjá teikningar af hótelinu sem rísa á á Siglufirði innan skamms auk þess að fara í vettvangsferð um þær byggingar sem fyrirtækið hefur nú þegar breytt og hafið rekstur í. Hópurinn endaði svo á því að snæða kvöldverð á Hannes Boy og héldu allir sáttir og ánægðir heim á leið síðla kvölds.