Fíkniefnahundar við æfingar
Átta fíkniefnahundar frá lögregluembættum landsins voru á dögunum samankomnir á Sauðárkróki á árlegum æfingadegi. Þar kepptu þeir m.a. sín á milli í að leita að fíkniefnum í bílum og fengu teymi tveggja hunda og tveggja lögreglumanna tuttugu mínútur til að leita að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í tveimur bílum.
Að sögn Höskuldar B. Erlingssonar lögreglumanns á Blönduósi, sem skipuleggur æfingadaginn að þessu sinni er Íslandsmót hluti af þessum árlega degi þar sem hundarnir hittast allir, en síðan sé komið saman oftar yfir árið til ýmissa æfinga.
Segja má að hundarnir átta séu allir „starfsmenn“ lögreglunnar.“ Þeir eru í eigu embættanna en lögreglumenn eru stjórnendur og umsjónarmenn hundanna. Hundarnir búa heima hjá umsjónarmönnum, sem þjálfa þá og sjá um alla umönnun þeirra. Á Norðurlandi vestra eru tveir fíkniefnahundar, einn á Blönduósi sem Höskuldur hefur umsjón með og einn á Sauðárkróki sem Steinar Gunnarsson hefur umsjón með. Auk þeirra eru hundar á Akureyri, í Borgarnesi, á Selfossi, í Vestmannaeyjum og í Keflavík.
Höskuldur segir að hundarnir séu í þjálfun allt sitt líf en það taki um tvö ár þangað til þeir fara að vinna að gagni. Síðan þurfi stöðugt að halda þeim í þjálfun og einu sinni á ári verði að mæta með þá í tveggja daga úttekt sem kallast starfsleyfisúttekt, til að viðhalda starfsleyfinu og þeir megi vinna sem fíkniefnahundar.
Höskuldur segir að í gegnum tíðina hafi ákveðnar tegundir hunda valist til að verða fíkniefnahundar. „Veiðihundar til dæmis eru mjög góðir í þetta, það er spilað inn á þeirra. Svo hafa t.d. verið notaðir shefferar, sem reyndar eru af fjárhundakyni, en þeir hafa mikið verið notaðir í lögreglunni líka,“ segir Höskuldur.
Ekki varð annað sé en hundarnir gengju ákveðnir til verks og væru fljótir að finna efnin sem falin höfðu verið í bílnum. Að launum fengu þeir tennisbolta til að leika sér að og virtust alsælir með það.