Fíkniefni fundust á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður
14.10.2013
kl. 15.55
Lögreglan á Sauðárkróki hefur á síðustu tveimur vikum farið í tvær húsleitir vegna gruns um fíkniefnaneyslu. Í þessum tveimur húsleitum hafa fimm einstaklingar verið kærðir vegna vörslu fíkniefna og einn vegna gruns um sölu á fíkniefnum. Lögreglan hefur í þessum aðgerðum sínum lagt hald á nokkra tugi gramma af ætluðum fíkniefnum. Í bæði skiptin naut lögreglan aðstoðar fíkniefnahundsins Þoku og sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Lögreglan skorar á almenning að láta vita ef grunsemdir eru uppi um fíkniefnaneyslu og eða fíkniefnasölu og minnir á fíkniefnasímann 800 5005.