Fimm milljón kr. styrkur til endurbyggingar Riishúss
Fimm milljónir króna af söluverði fasteignarinnar Brekkubæjar á Borðeyri munu renna sem fjárstyrkur til Félags áhugamanna um endurbyggingu Riishúss á Borðeyri. Sveitastjórn Húnaþings vestra samþykkti þetta á fundi sínum sl. föstudag.
Í fundargerð segir að þess er vænst að með fjárframlagi þessu megi takast að ljúka endurbótum á neðri hæð hússins. Samþykkt þessi er gerð með fyrirvara um að sala fasteignarinnar Brekkubæjar gangi eftir.
Riishús er eitt elsta húsið við Húnaflóa og var byggt árið 1862 í kjölfar þess að fyrsti verslunarstjórinn kom til Borðeyrar. Samkvæmt heimildum Vísindavefsins var Riis-húsið upphaflega kallað Faktorshús upp á dönsku því þar bjó verslunarstjóri Borðeyrar á hverjum tíma en faktor þýðir verslunarstjóri. Um 1880 komst verslun á Borðeyri í hendur Hans A. Clausen en árið 1890 keypti Richard Peter Riis verslunina. Síðan hefur húsið verið kennt við hann.