Fimm stelpur skrifa undir leikmannasamninga í körfunni

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur skrifað undir leikmannasamninga við fimm konur til tveggja ára en þær eru Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir, Guðfinna Olga Sveinsdóttir,Erna Rut Kristjánsdóttir og Ísabella Guðmundsdóttir. Stefán Jónsson formaður deildarinnar segir að samningar hafi ekki verið gerðir við yngri stelpur en árgerð 1996 en svo verður málið skoðað á ný eftir áramót.

Samningarnir tryggja það að stúlkurnar leiki með liðinu næstu tvö ár auk þess sem þær fá eitthvað í sinn hlut m.a. í formi styrkja til skókaupa.

Fyrsti deildarleikur stelpnanna þessa tímabils verður á morgun er þær heimsækja stöllur sínar í Fjölni. Eru allir brottfluttir Skagfirðingar og aðrir áhugasamir hvettir til að mæta í Grafarvoginn og styðja stelpurnar til sigurs.

Fleiri fréttir