FISK-Seafood á Sauðárkróki meðal hæstu greiðenda opinberra gjalda

Ellefu sjávarútvegsfyrirtæki eru meðal þeirra fjörtíu lögaðila sem greiða hæstu opinber gjöld og vermir FISK-Seafood á Sauðárkróki sextánda sætið samkvæmt heimasíðu LÍÚ. Þar er vitnað í lista Ríkisskattstjóra yfir álagningu opinberra vegna álagningarársins 2013. Ríkissjóður Íslands greiðir hæstu gjöld allra eða rúma 9,3 milljarða króna, Arion banki kemur næstur með rúma 4,8 og GLB Holding ehf. tæpa 3,4 milljarða króna.

„Það hversu ofarlega sjávarútvegsfyrirtæki skipa sér á þennan lista sýnir vel mikilvægi sjávarútvegs í íslensku atvinnulífi. Stöndugur og vel rekinn sjávarútvegur skilar samfélaginu miklum verðmætum jafnt útflutningstekjum, launagreiðslum sem greiðslum er standa undir okkar sameiginlegu neyslu. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki má draga þrótt úr þessari mikilvægu atvinnugrein og takmarka þannig svigrúm hennar til fjárfestingar og nýsköpunar," segir Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, um stöðuna.

Á liu.is segir að sjö sjávarútvegsfyrirtæki á landinu séu á meðal þeirra tuttugu hæstu.

HB Grandi í Reykjavík er númer átta á listanum og greiðir hæst gjöld sjávarútvegsfyrirtækja á þessu álagningarári  eða rúma 2 milljarða

Samherji hf. á Akureyri er í 9. sæti en hann greiddi rúmlega 1,8 milljarð króna í opinber gjöld.

Síldarvinnslan hf. í Fjarðarbyggð er í 10. sæti og greiddi rúmlega 1,8 milljarð í gjöld.

Ísfélag Vestmannaeyja hf. er númer tólf á listanum og greiddi 1,1 milljarð í gjöld

Í 15. sæti, eða rétt á eftir Össuri hf. og Icelandair ehf, er Skinney-Þinganes á Hornafirði en það fyrirtæki greiddi tæpar 780 milljónir í gjöld.

FISK-Seafood á Sauðárkróki er í sextánda sæti.

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum er í átjánda sæti

Eskja í Fjarðabyggð er í tuttugasta sæti.

 

Önnur sjávarútvegsfyrirtæki á listanum eru Rammi (23. sæti), Brim (25. sæti) , Samherji Ísland ehf (33. sæti).

Sjá nánar HÉR.

Fleiri fréttir