Fjallaland RAX í Miðgarði í kvöld
Fjallaland er fyrsta bók Ragnars Axelssonar sem fjallar eingöngu um Ísland og eitt viðamesta verkefni hans frá því að hann hóf störf sem ljósmyndari hefur verið að mynda leitir á Landmannaafrétti. Í honum miðjum eru Landmannalaugar, eitt helsta náttúruundur heims þar sem líparítskriður, hverir, jökulís og grænir flákar skapa einstakt samspil lita og mynda. Í tilefni af útkomu bókarinnar verður RAX í Miðgarði kl. 20 í kvöld með myndasýningu og fyrirlestur.
Í rúman aldarfjórðung hefur RAX slegist í för með bændum úr Holtum og af Landi og ljósmyndað leitirnar við allar hugsanlegar aðstæður – hvort sem er í hríð, úrhelli eða um sólbjartan dag – og skapað stórbrotið heimildaverk sem á sér fáar hliðstæður.
Fjallaland er minnisvarði um íslenska bændamenningu. Hún sýnir á ljóðrænan og sannferðugan hátt erfiðið að baki leitinni en líka áræðnina og hörkuna, og traustið sem ríkir milli fjallmanna. Bókin kemur út hjá bókaútgáfunni Crymogeu.