Fjallaskokk yfir Vatnsnesfjallið

Fimmtudaginn 23. júlí verður gengið/skokkað/hlaupið frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Þetta er um 11 km leið og hækkun á milli 400-500 metrar.

Í Sjónaukanum segir að Gangan/skokkið/hlaupið sé keppni þar sem gildir að vera fyrstur yfir fjallið, en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta eftir sínu höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða farið leiðina án þess að vera keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að vera með og hafa ánægju af.

Aldursskipt; 15 ára og yngri, 16-49 ára og 50 ára og eldri, allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Einnig verða veittir verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Ræst verður í tveimur flokkum, göngufólk og trimmarar/keppnismenn.

Göngufólk

Göngufólk keppir ekki til verðlauna. Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 16:00 og lagt af stað með rútu kl. 16.15 og áætlaður komutími að Grund kl. 16:35. Ræst verður stundvíslega klukkan 16:45.

Trimmarar og keppnisfólk

Mæting er í Kirkjuhvammi kl. 17:00, lagt af stað með rútu kl. 17:15, áætlaður komutími að Grund kl. 17:35. Ræst er stundvíslega kl. 17:45.

Þátttaka tilkynnist á netfangið usvh@usvh.iseða til skrifstofu USVH í sími 865-2092. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og í hvaða aldursflokk er verið að skrá. Þátttökugjald er kr. 1.500.

Fleiri fréttir