Fjárhagsáætlun menningarmála 2012

Menningar- og kynningarnefnd Svf. Skagafjarðar lagði fram á síðasta fundi sínum drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarliði sveitarfélagsins fyrir árið 2012. Lagt er til að útgjöld til málaflokks 05 verði kr. 123.912.000 og samþykkt að vísa áætluninni til Byggðarráðs.

 

Samkvæmt tillögum nefndarinnar hækkar gjaldskrá Héraðsbókasafns, lánþegaskírteini úr kr. 1.500 í kr. 1.700,  aðgangseyrir í Glaumbæ hækkar úr kr. 600 í kr. 800 og aðgangseyrir í Minjahúsið úr kr. 400 í kr. 600.

Nefndin vísar því til Byggðarráðs að endurskoða núverandi fyrirkomulag á framlagi Akrahrepps til rekstrar Héraðsbókasafns.  Akrahreppur greiðir nú kr. 48.000 á ári til rekstrarins.

Ennfremur vísar nefndin því til Byggðarráðs að leitað verði til Menningarseturs Skagfirðinga í Varmahlíð varðandi rekstrarstyrk til Menningarhússins Miðgarðs að upphæð 2.000.000 fyrir næsta ár.

Fleiri fréttir