Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2012 samþykkt
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins fyrir árið 2012 en síðari umræða um fjárhagsáætlunina fór fram á fundi bæjarstjórnar þann 21. desember sl.
Fram kemur á heimasíðu sveitarfélagsins að Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri kynnti fjárhagsáætlunina á fundinum og flutti greinargerð henni tengdri þar sem segir m.a. að í forsendum fyrir áætluninni sé gert ráð fyrir að verðlag breytist um 4,2% á árinu 2012, útsvarsprósenta verði óbreytt 14,48% og sömuleiðis álagshlutfall fasteignaskatts.
Þar segir jafnframt að gert er ráð fyrir nokkrum gjaldskrárhækkunum, sem verða þó stillt í hóf og tekið mið af vísitöluhækkunum og nýgerðum kjarasamningum. Lagðar voru fram bókanir frá bæði meiri- og minnihluta sem má sjá nánar í fundargerð 275. fundar sveitarstjórnar. Loks var fjárhagsáætlunin var samþykkt með fimm atkvæðum meirihlutans.
Í fundargerðinni segir um fjárhagsáætlunina:
„Rekstrartekjur A-hluta eru áætlaðar 2.954.356 þús.kr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða 2.850.200 þús.kr. Fjármagnsliðir 150.639 þús.kr. til gjalda. Rekstrarhalli ársins 46.482 þús.kr.
Samantekin áætlun fyrir A og B-hluta sveitarsjóðs gerir ráð fyrir tekjum að upphæð kr. 3.398.536 þús.kr., rekstrargjöldum án fjármagnsliða 3.117.786 þús.kr. og fjármagnsliðum til gjalda 231.548 þús.kr. Rekstrarafgangur ársins 49.202 þús. krónur. Handbært fé frá rekstri er áætlað að verði 112.032 milljónir króna í A-hluta, en 354.580 milljónir króna í samstæðunni í heild.
Fjárfesting samstæðunnar er áætluð samtals 265.607 milljónir króna, sala eigna 65 milljónir króna, afborganir lána 296 milljónir króna og ný lántaka 196 milljónir króna.“