Fjármagnar 2500 fermetra reiðhöll
Breski auðkýfingurinn sir Richard George lánar fjármagn til byggingar um 2.500 fermetra reiðhallar og hesthúss í landi Lækjamóts í Víðidal í Húnaþingi vestra, en Viðskiptablaðið greindi frá þessu í gær. Talið er að kostnaður við framkvæmdina nemi í kringum hálfan milljarð króna og verði hesthúsið með þeim flottari á landinu, með stíum fyrir 31 hest.
Ísólfur Líndal, hestamaður og reiðkennari, og fjölskylda hans að Lækjamóti standa að framkvæmdunum. Til stendur að í hinum nýju mannvirkjum verði sinnt hrossarækt og tamningum auk annars. Stefnt er að því að erlendir ferðamenn komi á Lækjamót í reiðkennslu.
Í húsinu verður reiðkennsla, þjálfun og hrossarækt auk tækja og tóla fyrir endurhæfingu hesta. Þegar húsið verður fullbúið og reksturinn kominn í gang er stefnt á að erlendir ferðamenn komi í reiðkennslu hjá Ísólfi, sem fram til þessa hefur ferðast um heiminn þveran og endilangan í tengslum við störf sín.
Áætlanir gera ráð fyrir því að húsið verði fokhelt í haust og verði hægt að hefja rekstur í því í janúar á næsta ári en framkvæmdir eru hafnar. Byrjað er að taka grunn að húsinu og stefnt að því að undirbúa það fyrir járnabindingu í lok mánaðar.
„Ég er kominn með magnaða menn í framkvæmdir og held að þetta sé ekki alveg út í loftið,“ segir Ísólfur í samtali við vb.is. „Þetta verður ekkert hallærislegt. En þarna á að fara vel um menn og hesta,“segir Ísólfur.
„Þetta snýst um það að verða sjálfum okkur nóg og að við getum unnið heima hjá okkur. Þetta er full vinna fyrir tvo, okkur hjónin og strákana. Ég er búinn að ferðast gríðarlega mikið vegna kennslu undanfarin ár og djöflast út um allan heim. Planið er að minnka það mikið og að útlendingar, ýmsir fastakúnnar og aðrir nýir, komi í kennslu hjá mér,“ segir Ísólfur í samtali við Viðskiptablaðið.
Ísólfur kynntist auðkýfingnum sir Richard George í gegnum reiðkennslu á Englandi og segir hann vera mikinn áhugamann og íslenska hestinn og íslenska náttúru. Sir Richard keypti í febrúar síðastliðinn ellefu íslenska hesta fyrir um 100 milljónir króna, samkvæmt fréttavefnum Vísir.is, og eru hestarnir staðsettir á Lækjarmóti. Auðkýfingurinn mun lána Ísólfi og fjölskyldu hans fjármagn vegna byggingarinnar en Ísólfur fjármagnar bygginguna sömuleiðis með sölu á hrossum. Um lánið segir hann: „Þetta verður ekki á neinum bankavöxtum.“
Auður Sir Richard George byggist á framleiðslu Weetabix, einu mest selda morgunkorni Breta. Afi hans hóf framleiðslu á því í Bretlandi árið 1932 og var sir George forstjóri Weetabix Limited þar til árið 2003 þegar hann seldi reksturinn til bandaríska sjóðsins Hicks Muse fyrir 642 milljónir punda, jafnvirði í kringum 77 milljarða íslenskra króna á meðalgengi þess tíma.