Fjölbreytt æskulýðsstarf hjá Þyti

Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar hestamannafélagsins Þyts var haldin á Gauksmýri í gær en samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins voru stigahæstu knapar í barnaflokki og unglingaflokki verðlaunaðir. Í barnaflokki var Karitas Aradóttir stigahæst en í unglingaflokki var Kristófer Smári Gunnarsson stigahæstur.

Það voru 65 börn og unglingar sem tóku þátt í fjölbreyttu æskulýðsstarfi hjá Þyti. Boðið var upp á voru ýmis reiðnámskeið hjá hestamannafélaginu (byrjendanámskeið, keppnisnámskeið, námskeið fyrir minna vana og námskeið fyrir meira vana), fimleikar á hesti og svo tóku þau þátt í ýmsum keppnisgreinum og sýningum. Auk þessa luku fimm krakkar námskeiðinu Knapamerki 2.

Á uppskeruhátíðina mættu mörg af yngri krökkunum sem tóku þátt í æskulýðsstarfinu á árinu en samkvæmt heimasíðunni  var mikið af eldri krökkunum að heiman vegna annars skipulags æskulýðs- eða skólastarfs. Börnin fengu öll viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og stórt hestalitaplakat.

Fleiri fréttir