Fjölmenni í Víðidalstungurétt
Mikið fjölmenni var í stóðrétt Víðdælinga í Víðidalstungurétt um síðustu helgi, en tveggja daga dagskrá er í kringum réttarstörfin ár hvert. Á föstudeginum var stóðinu smalað af nyrsta svæði Víðidalstunguheiðar og niður í Víðidalinn og tóku ríflega 200 manns þátt í fylgja því síðasta spölinn.
Þrátt fyrir töluverðan kulda var góð stemmning í hópnum og allir komust heilir heim. Á laugardeginum var stóðið rekið til réttar kl. 10:00 í einstaklega fallegu veðri, glampandi sól og blankalogni. Auk hefðbundinna réttarstarfa fór fram sölusýning á hrossum, uppboð og happadrætti þar sem aðalvinningurinn var folald.
Folaldið góða kom í hlut hins unga Atla Steinars Ingasonar frá Borgarnesi (ættuðum frá Hrappsstöðum í Víðidal). Um kvöldið var svo slegið upp stóðréttardansleik í félagsheimilinu Víðihlíð þar sem hljómsveitin Sixties spilaði fyrir dansi langt fram á morgun.