Fjölmörg störf auglýst laus til umsóknar við lúxushótelið á Deplum

Frá framkvæmdum við Depla í Fljótum í Skagafirði. Mynd/ÓAB
Frá framkvæmdum við Depla í Fljótum í Skagafirði. Mynd/ÓAB

Eleven Experience, rekstaraðili ferðaþjónustunnar sem verið er að koma á laggirnar á Deplum í Fljótum, auglýsir eftir starfsfólki. Mikið hefur verið fjallað um framkvæmdir við lúxushótelið sem þar hefur verið reist í fjölmiðlum undanfarið ár en til stendur að opna hótelið  í apríl næstkomandi. Í auglýsingu í Sjónhorninu í dag kemur fram að Eleven Experience er alþjóðlegt ferðaþjónustufyrirtæki sem leitast við að bjóða upp á einstaka þjónustu. 

„Deplar er gamalt bændabýli staðsett í Fljótum í Skagafirði. Nú er verið að breyta þessu bændabýli í lúxusgistiaðstöðu með 12 svítum. Á Deplum verður fullbúið eldhús, tveir barir, heilsulind o.fl. Eleven Experience á Íslandi leitar nú eftir starfsfólki á Depla. Um er að ræða spennandi og krefjandi störf með mikla möguleika og tækifæri fyrir réttu manneskjurnar,“ segir í auglýsingunni.  

Auglýst er eftir: 

„Experience manager“, matreiðslumönnum, þjónum, eldhússtarfsmönnum, starfsmönnum í heilsulind (snyrtifræðingum og nuddurum) og starfsmönnum við ræstingu og í þvottahús. Nánari upplýsingar um störfin má lesa í Sjónhorninu, einnig í síma 588 1800. 

Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 2016.  

Fleiri fréttir