Fjölskyldudagur Húna

Björgunarsveitin Húnar efnir til fjölskyldudags á morgun laugardag. Unglingadeildin Skjöldur ætlar að ganga upp á Þrælsfell sem er um 900m hátt og ætla þeir að koma með snjóþotur og sleða til að flýta fyrir niðurferðinni.

Á heimasíðu björgunarsveitarinnar segir að það sé fínt að kíkja á fjallið með fjölskyldunni fyrir þorrablótið og fá sér frískt fjallaloftið fyrir kvöldið.

Fleiri fréttir