Fjórar hryssur drápust vegna eitrunar

Á vefnum Vísi.is í gær var greint frá því að fjórar hryssur drápust vegna eitrunar í heyi á bæ Lilju Pálmadóttur á Hofi í Skagafirði nú í janúar. Líkur benda til að um hræeitrun hafi verið að ræða.

Lífshættuleg eitrun getur myndast í heyi ef dýr drepst í innpakkaðri heyrúllu, þar sem fyrir er raki og tiltekin baktería úr jarðvegi. Eitrið er lyktarlaust og er munurinn á heyinu er ekki sýnilegur. Á rigningasömum sumrum eykst hættan á að slíkar aðstæður myndist, þar sem erfiðara reynist að þurrka heyið.

Heyið af túninu sem hrossin átu eru til skoðunar hjá sérfræðingum. Enn ríkir hætta á eitrun á bænum, en eitrunin kemur fram um það bil tíu dögum frá því að hrossin fá heyið.

Lilja Pálmadóttir og fjölskyldan á Hofi átti þrjár af hryssunum en Bjarni Þórisson bóndi á Mannskaðahóli var eigandi einnar. Allar hryssurnar voru tamdar og góðir reiðhestar sem hafa átt folöld síðustu ár.

Lilja kvaðst vera miður sín vegna atburðarins og baðst undan viðtali við fréttamenn Vísi.is vegna málsins.

Fleiri fréttir