Fjöruhlaðborðið á Vatnsnesinu

Það kenndi ýmissa kræsinga á rómuðu fjöruhlaðborði húsfreyjanna á Vatnsnesi, kræsinga sem alla jafnan sjást ekki á hlaðborðum landans. Á borðum mátti sjá súrsuð hænuegg, ábrystir úr kindum og kúm, súra selshreifa, selspik nýtt og saltað, grafið hrefnukjöt, grásleppuhrognabollur, grafna grálúðu, þurrkað og grafið ærkjöt, hettumávsegg og ýmislegt fleira góðgæti.

Fólk beið í röðum eftir að komast að hlaðborðinu og greinilegt að margir hlökkuðu verulega til. Það eru tólf konur sem koma að hlaðborðinu en allt í allt eru um fimmtíu manns sem leggja hönd á plóg til að þetta kvöld heppnist sem best. Maturinn hefur verið lengi í undirbúningi, og flest eitthvað sem ekki var verkað í gær. Ferðafólk sem og heimafólk naut matarins undir heiðskírum himni með glampandi kvöldsólina á haffletinum, undir borðhaldi var harmóníkuspil og söngur, í ár komu um 150 manns sem er í meðallagi sagði Gudrun Kloes. Skemmtileg og fróðleg bragðupplifun og að fara fyrir Vatnsnesið á svona kvöldi er ævintýri líkast.

.

Fleiri fréttir