Flutningabíll kom æðandi á bílaþvögu við Miklagil

Mikil mildi var að ekki urðu alvarleg slys á fólki þegar tólf bíla árekstur varð á Holtavörðuheiði í gær. Meðal þeirra voru Hermann Ívarsson, lögregluvarðstjóri á Norðurland vestra, sem kastaðist tugi metra og endaði utan vegar eftir að flutningabíll kom æðandi á bílaös sem hafði skapast eftir árekstur.

Tilkynnt var um árekstur á Holtavörðuheiði, norðarlega við Miklagil og fór Hermann þá á vettvang, en hann er starfandi á Blönduósi. Þegar hann bar að garði hafði orðið 4 eða 5 bíla árekstur. Veðurofsinn mun gjarnan vera verstur við Miklagil og mikil snjósöfnun á brúnni. Vindurinn úr gilinu myndar gjarnan kóf þannig að skyggni verður mjög slæmt.

Í samtali við Morgunblaðið sagðist Hermann hafa hugsað með sjálfum sér að þetta væri hans síðasta. Hann var að ræða við fólk sem lent hafði í árekstrinum og einn bílanna var þversum á veginum og verið að aðstoða farþegann þegar flutningabíll kom aðvífandi á mikilli ferð. Viðbrögð Hermanns voru að öskra á farþegann í bílnum að forða sér.

Sjálfur stóð Hermann við hægri framenda fólksbílsins þegar flutningabíllinn skall á honum af miklu afli. Umræddur farþegi náði að forða sér en Hermann þeyttist sem fyrr segir tugi metra út fyrir veg. Þar rankaði hann fljótlega við sér og varð þá ljóst að farþeginn hafði orðið undir flutningabílnum, við vinstra framhjólið og aðeins höfuð hans stóð undan hásingunni.

Hermann kallaði út sjúkrabíl og fór að huga að farþeganum en þá þegar hafði eiginkona hans komið honum til aðstoðar og hann var sjálfur að reyna að komast undan bílnum. Maðurinn hafði fengið ansi mikið högg en var að sögn Hermanns furðu brattur. Segir hann ótrúlegt lán að ekki fór verr. Mbl. Hefur sagt frá því að maðurinn sem lenti undir flutningabílnum sé ekki lífshættulega slasaður og önnur slys á fólki á heiðinni í gær hafi verið minniháttar.

Fleiri fréttir