Flutningabíll með tengivagni valt í Blönduhlíð
feykir.is
Skagafjörður
13.12.2013
kl. 10.46
Þjóðvegur 1 um Blönduhlíð í Skagafirði er lokaður vegna umferðaróhapps sem varð í morgun er flutningabíll með tengivagn valt þvert á veginn. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki urðu meiðsl ökumanns lítil en bíllinn talsvert skemmdur. Verið er að koma bíl og vagni á hjólin aftur og er reiknað með að hægt verði að hleypa umferð á aftur upp úr hádegi.
Engin hálka var á veginum en hins vegar mjög hvasst og er talin ástæða óhappsins.