Flutningabíll sat þversum á Holtavörðuheiði
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
08.04.2015
kl. 09.36
Björgunarsveitir frá Hvammstanga og úr Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoðar á Holtavörðuheiði í gærkvöldi þar sem flutningabíll sat þversum á veginum og lokaði fyrir umferð. Samkvæmt frétt á vef Landsbjargar var snarvitlaust veður á háheiðinni og þurfti vegfarendur aðstoð við að komast niður.
Um eitt leytið í nótt er skrifað á facebook-síðu Björgunarsveitarinnar Húna á Hvammstanga að vandræðin á Holtavörðuheiði voru að leysast, bæði var veðrið að skána og búið var að losa flutningabílinn sem lokaði veginum. Þá voru allir vegfarendur á minni bílum komnir af heiðinni.