Formleg opnun á Sjávarborg
Veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga verður formlega opnaður á morgun, föstudaginn 27. mars, og verða ýmiskonar tilboð á boðstólnum alla helgina. Veitingastaðurinn er staðsettur á efri hæð Selaseturs Íslands á Hvammstanga.
Á föstudeginum verður réttur dagsins á sínum stað í hádeginu, kaffihlaðborð fyrir alla fjölskylduna milli kl. 14:30 og 17:00 og kvöldverður frá kl. 19:00 til kl. 21:30, en mælst er til þess að fólk panti borð fyrirfram í kvöldverðinn. Trúbadorinn Sigvaldi Helgi Gunnarsson sér svo um tónlistina frá kl. 22:00 til kl. 03:00, en á þeim tíma er 18 ára aldurstakmark.
Á laugardeginum opnar Sjávarborg kl. 11:00 og verður svipuð dagskrá yfir daginn; hádegisverður á tilboði, kaffihlaðborð fyrir alla fjölskylduna og kvöldverður samkvæmt tilboðsmatseðli.
Húsið verður opið til kl. 03:00. 18 ára aldurstakmark.
Opnunartímar Sjávarborgar verða fyrst um sinn svohljóðandi:
Sunnudaga – fimmtudaga kl. 11:00-22:00. Eldhúsið lokar kl 21:00
Föstudaga –laugardaga kl. 11:00-01:00, nema annað sé auglýst. Eldhúsið lokar kl 22:00.
Borðapantanir fara fram í síma 451-2927. Nýr sími Sjávarborgar er 451-3131.
Frekari upplýsingar má sjá á fésbókarsíðu staðarins.