Forn legsteinn til sýnis í Hóladómkirkju
Forn legsteinn frá 16. öld er nú til sýnis í Hóladómkirkju í Hjaltadal. Sólveig Jónsdóttir steinforvörður hefur unnið að því að forverja steininn í tengslum við MA – verkefni sitt.
Fram kemur á heimasíðu Hólarannsóknarinnar að legsteinninn tilheyrði Halldóru Árnadóttur, konu Guðbrands Þorlákssonar biskups á Hólum. Halldóra var fædd á Hlíðarenda í Fljótshlíð árið 1547 og giftist Guðbrandi Þorlákssyni árið 1572. Hún lést við barnsburð árið 1585, þá einungis 38 ára gömul.
Sólveig hefur unnið að því að draga fram þær áletranir og skreytingar sem eru á legsteininum og koma stöðugleika á hann svo hann yrði sýningarhæfur. Áframhaldandi rannsóknir leiða vonandi í ljós nánari upplýsingar um legsteininn, s.s. uppruna steinsins sem hann var gerður úr, hvernig hann var skreyttur og hvers konar tól voru notuð.