Forsæla hefst með tónleikum Sóldísar
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
22.04.2014
kl. 14.56
Á morgun, síðasta vetrardag, hefst svokölluð Forsæla, sem er eins konar forskot á Sæluviku, en hún hefst formlega næstkomandi sunnudag. Fyrsti viðburðurinn á dagskrá Forsælu eru tónleikar kvennakórsins Sóldísar í Sauðárkrókskirkju sem hefjast kl 20:30.
Á tónleikunum er veturinn kvaddur með fögrum tónum og sumrinu fagnað. Söngstjóri er Sólveig F. Einarsdóttir og undirleikari er Rögnvaldur Valbergsson. Einsöngvarar eru Ólöf Ólafsdóttir, Sigríður Margrét Ingimarsdóttir og Íris Olga Lúðvíksdóttir.
Dagskrá Sæluviku hefur verið dreift í öll hús í Skagafirði en hún er einnig aðgengileg hér.