Frá tónleikum Ásgeirs og Farao
Sunnudagskvöldið 29. desember 2013 hélt hljómsveitin Ásgeir, með þá Ásgeir Trausta og Júlíus Aðalstein innanborðs, tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga og var hin norska Farao með í för.
Gríðarlega góð mæting var á tónleikana og voru þeir jafnframt sendir beint út á Rás 2. Upptaka frá tónleikunum er aðgengileg til. 30. mars n.k. á vef Rásar 2.
Á vef Norðanáttar er sagt frá því að tónleikarnir hófust á því að Farao tók nokkur lög og sögðust þær vera afar ánægðar með að kynnast heimabæ Ásgeirs, en þær hafa verið að "túra" með hljómsveitinni í Evrópu. Eftir að Farao lék nokkur lög tók við auglýsinga- og fréttahlé og svo steig hljómsveitin Ásgeir á stokk við mikinn fögnuð tónleikagesta.
Norðanátt mætti með myndavélina á tónleikana og má sjá afraksturinn hér.