Frábær byrjun í deildarbikarnum hjá meistaraflokk kvenna
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli byrjaði keppnistímabilið með glæsibrag, en stelpurnar eru búnar að spila fjóra leiki í deildarbikarkeppninni, vinna þrjá leiki og gera eitt jafntefli.
Laugardaginn 12. apríl sl. mættu stelpurnar liði Hattar frá Egilsstöðum, en Höttur hafði ekki tapað leik á tímabilinu. Leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri og að sögn Guðjóns Arnar Jóhannssonar, þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Tindastóli, var þetta líklega besti leikur Stólanna á mótinu fram til þessa. Tindastóll átti frábæran fyrri hálfleik en náði þó ekki að skora. Í seinni hluta fyrri hálfleiks slasast Snæbjört Pálsdóttir, leikmaður Tindastóls og sló það liðið niður. Hattarstúlkur gengu á lagið og skoruðu tvö mörk í síðari hálfleik, en þá rönkuðu Stólastúlkur við sér og náðu að jafna með mikilli þrautseigju. Það voru þær Bryndís Rún Baldursdóttir og Hrafnhildur Björnsdóttir sem skoruðu mörkin fyrir Stólana.
Næst átti Tindastóll leik til góða á móti Sindra frá Hornafirði og fór leikurinn fram sl. sunnudag. Leikurinn hófst með mikilli pressu Hornfirðinga og áttu Stólastúlkur fullt í fangi með að ná upp takti í spilið. Hörkuleikur var kominn í gang og var ljóst frá fyrstu mínútu að mörkin yrðu ekki mörg. Eftir hálftíma leik var svo brotið á Bryndísi Rún Baldursdóttur, leikmanni Tindastóls og fengu Stólastúlkur víti. Rakel Svala Gísladóttir skoraði af öryggi úr vítinu og Tindastóll kominn með forystuna. Í lok fyrri hálfleiks jöfnuðu Sindrastúlkur leikinn með frábæru skoti fyrir utan teig. Á 60. mínútu náðu Tindastólsstúlkur aftur forystunni þegar Laufey Rún Harðardóttir skoraði annað mark Stólanna. Lokastaða leiksins 2-1 fyrir Tindastól.
Nk. laugardag mæta stelpurnar síðan liði Álftaness í undanúrslitum, en ekki er komið á hreint hvar leikurinn verður spilaður.