Frábært færi í fjallinu

Skíðasvæðið í Tindastóli er opið í dag en samkvæmt heimasíðu skíðadeildarinnar er veðrið í fjallinu mjög gott og skíðafærið frábært hvort heldur menn vilja vera á gönguskíðum, bretti eða venjulegum skíðum.

Það hefur verið mikil ísing undanfarna daga og kemur fram á heimasíðunni að ekki hefur verið svona mikil ísing á svæðinu síðan opnað var árið 2000.

„Það má segja einnig með snjóinn að það hefur ekki verið svona mikill snjór síðan við opnuðum þannig að þetta er jákvætt allt saman,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir