Fræknir garpar á Norðurlandamóti í sundi

Norðurlandamót garpa í sundi fer nú fram í Laugardalslaug í Reykjavík en það er sniðið að eldri þátttakendum. Sunddeild Tindastóls á fimm þátttakendur á mótinu, systkinin Helgu og Sigurjón Þórðarbörn, Valgeir og Soffíu Kárabörn og Ingvar Gýgjar Jónsson.

Keppnin hófst í gær og náðist ágætur árangur hjá fulltrúum Tindastóls m.a. stóð Ingvar Gýgjar uppi sem sigurvegari í 100 m bringusundi í flokki 80 – 84 ára. Öll eiga þau eftir að taka sundtökin í dag en hægt er að skoða úrslit á heimasíðu Sundfélagsins Ægis http://www.aegir.is/live/nom/.

Fleiri fréttir