Framhaldsdeild FNV formlega opnuð á Hvammstanga
Framhaldsdeild FNV á Hvammstanga formlega opnuð mánudaginn var og þá skrifað var undir samstarfssamning á milli Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Húnaþings vestra um rekstur og fjármögnun verkefnisins til ársloka 2015. Áætlað að um 150 manns hafi heimsótt deildina af þessu tilefni.
Rakel Runólfsdóttir umsjónarmaður framhaldsdeildarinnar stýrði dagskránni en á mælendaskránni voru Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra, Ingileif Oddsdóttir skólameistari FNV og Jón Freyr Gíslason sem flutti erindi fyrir hönd nemenda framhaldsdeildarinnar.
Gunnar Þórarinsson stjórnarformaður Kaupfélags vestur Húnvetninga greindi frá því að Kaupfélag V Hún ásamt Sláturhúsi KVH og Kaupfélagi Skagfirðinga hefði gefið deildinni stóla, borð og munaskápa. Guðmundur Haukur Sigurðsson afhenti nemendum 50“ sjónvarp fyrir hönd Lionsklúbbsins Bjarma á Hvammstanga.
Ingileif skólameistari sagði mjög góðan anda hafa verið í húsinu. „Það var virkilega gott að finna hve mikil ánægja er með verkefnið og hvað það er mikill velvilji er í samfélaginu,“ sagði Ingileif í samtali við Feyki. Hún sagði að von væri á fjölgun í dreifnáminu, en nokkrir krakkar sem höfðu farið suður til Reykjavíkur í skóla eru að flytja aftur heim á Hvammstanga til að fara í dreifnámið.
Ingileif sagði ákvörðunina um dreifnámið hafði verið tekin á vorönn og þá hófst skipulagningin. „Það var lykilatriði að allir myndu stefna að þessu verkefni saman, þ.e. skólinn, samfélagið og krakkarnir sjálfir. Því var haldinn vinnudagur með krökkunum og höfðu þeir mikið að segja um hvernig fyrirkomulagið yrði - ég tel að það hafi verið mjög mikilvægt,“ útskýrði Ingileif. „Þar sem dreifnámið var nýtt fyrir okkur bjóst ég við að upp myndu koma allskonar vandamál, en raunin varð allt önnur, það hefur allt runnið svo ljúft,“ sagði hún.
Vefmiðillin Norðanátt tók meðfylgjandi mynd, sem einnig var birt í Feyki, en á Norðanátt.is má skoða fleiri myndir frá viðburðinum.