Framkvæmdastjóri Elds í Húnaþingi óskast
Óskað er eftir að ráða í stöðu framkvæmdarstjóra unglistahátíðarinnar „Eldur í Húnaþingi“ fyrir árið 2013. Hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan árið 2003 og samkvæmt heimasíðu Unglistahátíðarinnar er nánast öll vinna við undirbúning hátíðarinnar unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu.
„Margt fólk úr ólíkum áttum hefur komið að skipulagningu hátíðarinnar ár hvert og hafa margar skemmtilegar og frumlegar hugmyndir litið dagsins ljós. Samt sem áður hefur ákveðin hefð skapast í kringum hátíðina og eru þar ákveðnir viðburðir sem skipað hafa sér fastan sess,“ segir á heimasíðunni.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Karólína í síma 867-7542. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 14. desember nk. eða í sundlaug@hunathing.is.