Frestur vegna viðburðadagatals Skagafjarðar

Sveitarfélagið Skagafjörður mun jafnframt birta jóla- og áramótadagskrá í desember líkt og síðustu ár þar sem viðburðir á aðventu, jólum og um áramót verða kynntir. Frestur til að skila inn viðburðum er til morgundagsins, miðvikudags 13. nóvember.

Þeir sem hafa áhuga á að koma viðburðum á framfæri í jóladagskrána eða hafa áhuga á að standa fyrir einhverju skemmtilegu í tengslum við tendrun ljósa á jólatrénu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Sigfús Inga Sigfússon með því að senda póst á sigfus@skagafjordur.is eða hringja í síma 455 6170.

Líkt og undanfarin ár gefur vinabær Skagafjarðar í Noregi, Kongsberg, íbúum Skagafjarðar jólatré sem verður staðsett á Kirkjutorginu á Sauðárkróki. Ljósin á trénu verða tendruð laugardaginn 30. nóvember nk. kl. 15:30 við hátíðlega athöfn.

Fleiri fréttir