Fríða og strákarnir með brons á Landsmóti UMFÍ

27. Landsmót UMFÍ var haldið á Selfossi um helgina. Veðurguðirnir skeyttu skapi sínu á gestum en ungt og hresst íþróttafólk lét það ekki buga sig og vann mörg góð afrek.Í frjálsíþróttakeppninni stóðu Skagfirðingar fyrir sínu að vanda.

Fríða Ísabel Friðriksdóttir varð í 3. sæti í þrístökki.

Fríða Ísabel Friðriksdóttir. Mynd: Tindastóll.is

Karlasveit UMSS í 4x100m boðhlaupi, skipuð þeim Sveinbirni Óla Svavarssyni, Ísak Óla Traustasyni, Guðjóni Ingimundarsyni og Daníel Þórarinssyni, lauk hlaupinu í 3. sæti. Tindastóll.is segir frá þessu.

Daníel Þórarinsson skilaði keflinu í mark í 4x100m boðhlaupi karla. Mynd: Tindastóll.is

Fleiri fréttir