Friðarganga upp á Nafir
Árleg friðarganga Árskóla fór fram í morgun en krakkarnir lögðu af stað frá skólanum kl. 08:15.
Nemendur og starfsfólk skólans mynduðu friðarkeðju upp Kirkjustíginn og að Krossinum en nemendur tendra árlega jólaljósin á krossinum við kirkjugarðinn. Veðrið var hið besta, það var lygnt og snjóföl þakti jörð sem birti yfir bænum.
Hér má sjá myndir frá friðargöngunni.