Friðargangan 2013 – Myndband
feykir.is
Skagafjörður
29.11.2013
kl. 15.05
Í morgun fóru nemendur Árskóla á Sauðárkróki í sína árlega Friðargöngu og mynduðu samfellda keðju frá kirkju og upp kirkjustíginn og létu ljósker ganga sín á milli alveg upp að krossinum. Kveðjan „friður sé með þér“ gengur einnig á milli krakkanna og svo þegar ljóskerið fer að nálgast krossinn er talið niður og krossinn upplýsist. Mikill spenningur er meðal barnanna sem fikra sig ofar á stígnum eftir því sem þau eldast en yngstu börnin í 1. bekk eru neðst og svo koll af kolli þangað til komið er að 10. bekk sem að endingu kveikja ljósið á krossinum góða.
Hér fyrir neðan má sjá stemninguna sem ríkti í blíðviðrinu í morgun.
https://www.youtube.com/watch?v=FOirs1gIxp4