Friðarhlaupið á Króknum í gær

Hluti af alþjóðlegu kyndilboðhlaupi, svokölluðu Friðarhlaupi, fór um Sauðárkrók í gær. Það er 16 manna hópur alþjóðlegar hlaupara sem munu hlaupa með kyndil í flestum þéttbýliskjörnum landsins undir merkjum sáttar og samlyndis milli manna. Bauðst meðlimum í göngu og skokkhópi staðarins að hlaupa með hópnum síðustu kílómetrana inn í bæinn og voru nokkrir sem nýttu sér það.

Meðfylgjandi mynd er af fésbókarsíðu Ólafshúss, en hópurinn mun hafa snætt þar í gærkvöldi.

Í morgun hélt hópurinn af stað til Blönduóss og eftirfarandi myndir tók Ótthar Edvaldsson þegar lagt var af stað frá íþróttavellinum á Sauðárkróki.

.

Fleiri fréttir