Friðrik Ómar og Jógvan Hansen með tónleika í kirkjunni

Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen heimsækja Skagfirðinga á ferð sinni um landið fimmtudagskvöldið 14. júlí en þá halda þeir tónleika í Sauðárkrókskirkju og flytja íslensk og færeysk dægurlög af plötu sinni VINALÖG sem kom út árið 2009 og var mest selda plata landsins það ár. Tónleikarnir eru liður í ferð þeirra um landið í sumar en þeir félagar hafa heldur betur slegið í gegn.

Tónleikarnir eru þeir 21. af 24 sem þeir félagar áætla að halda og hafa þeir tekist vel. Friðrik Ómar segir tónleikana njóta sín best þegar hún er flutt í kirkju því viss sjarmi sé yfir því að vera tveir að syngja og spila í skemmtilegri nánd við áheyrendur. Auk þess að syngja, spila þeir undir á hljóðfæri en Friðrik Ómar leikur á píanó en Jógvan á gítar.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er miðaverð aðeins 2000.- Húsið opnar kl. 19:30 og eru miðar einungis seldir við innganginn.

Fleiri fréttir