Frjálsíþróttaskóli UMFÍ á Sauðárkróki

Eins og undanfarin ár rekur UMFÍ frjálsíþróttaskóla á nokkrum stöðum á landinu í sumar í samstarfi við FRÍ. Skólinn, sem ætlaður er ungmennum á aldrinum 11 – 18 ára, verður starfræktur á Sauðárkróki, Laugum í Reykjadal, Egilsstöðum, Borgarnesi og Selfossi, á mismunandi tímum í sumar.

Á Sauðárkróki verður skólinn 22. – 26. júlí undir stjórn Árna Geirs Sigurbjörnssonar

Ungmennafélag Íslands hefur yfirumsjón með framkvæmd skólans og annast sameiginlega kynningu á starfseminni. Skólinn er í samvinnu við Frjálsíþróttasamband Íslands.

Sambandsaðilar á því svæði sem skólinn er haldinn á hverju sinni sjá um að finna kennara og aðstoðarmenn til starfa við skólann. Lagt er upp með að fagmenntaðir kennarar sjái um kennsluna á hverjum stað til að tryggja sem besta kennslu fyrir ungmennin.

Í lok námskeiðsins fá öll ungmennin viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttökuna. Einnig er lagður fyrir þá stuttur spurningarlisti til að athuga hug þeirra til skólans almennt. Skólinn hefur fengið eindæmum góð viðbrögð og ungmennin hafa farið sátt heim eftir lærdómsríka, krefjandi en umfram allt skemmtilega viku. Þátttaka ungmenna hefur aukist umtalsvert milli ára. Góð þátttaka undirstrikar að skólinn er ákjósanlegur vettvangur til að kynna og breiða út frjálsar íþróttir á Íslandi.

Nánari upplýsingar og skráning er að finna inni á umfí.is

Fleiri fréttir