Frumtamning og þjálfun á haustönn - pantanir
Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild hafa annast undir handleiðslu reiðkennara skólans.
Nú er leitað eftir hrossum í vinnuna á haustönn 2013. Önninni er skipt upp í tvö tímabil, og stendur hið fyrra frá 26. ágúst til 19. október, en hið síðara frá 21. október til 14. desember.
Kallað er eftir hrossum í þessi verkefni á fyrra tímabili haustannar, 26. ágúst til 19. október:
Hugsanlegt er að hross sem eru í frumtamningu á fyrra tímabili, geti haldið áfram í grunnþjálfun á hinu síðara, sé þess óskað. Það er þó ekki sjálfgefið að unnt verði að haga málum þannig.
Opnað verður fyrir pantanir í grunnþjálfun (síðara tímabil) í september. Forkröfur fyrir grunnþjálfun eru að hrossin séu frumtamin.