Fundur um ferðamál á Gauksmýri

Fundur um tækifæri svæðisins í ferðamálum og samsetningu ferðapakka verður haldinn á Gauksmýri á morgun, laugardaginn 19. janúar. „Ferðamenn koma til Íslands til að upplifa eitthvað nýtt og spennandi og til að kynnast landi og þjóð. En hvað hefur Húnaþing vestra til að bjóða þeim varðandi einstaka og áhugaverða upplifun og afþreyingu?“ er spurt í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónaukans.

Markmiðið með fundinum er að koma af stað vinnu við að skapa ferðapakka og vörur sem hægt verður að bjóða ferðamönnum til sölu á næstu misserum.

Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:

  • 13:00 Fundur settur
  • 13:05 Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar - Pétur Jónsson og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
  • 13:20 Stefán Haraldsson: Húnaþing sem áfangastaður ferðamanna?
  • 13:35 Sævar Freyr Sigurðsson: ,,Saga Travel – Afþreying á landsbyggðinni"
  • 14:00 Ferðapakkar - Vöruþróun og hópavinna
  • 15:30 Kaffihlé
  • 16:00 Samantekt úr hópvinnu
  • 16:30 Fundarlok

Fundurinn er haldinn á vegum Ferðamálafélags V-Hún. og SSNV Atvinnuflróun og er öllum opinn.

Heimild: Sjónaukinn

Fleiri fréttir