Fyrir þá sem vilja ná enn lengra

Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hyggst bjóða upp á morgunæfingar frá og með fimmtudeginum 12. janúar. Verða þær undir stjórn Bárðar Eyþórssonar og eru fyrir iðkendur í 9. bekk og eldri.

Samkvæmt heimasíðu Tindstóls munu æfingarnar verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 06.40 til 07.50, þannig að allir komist í sturtu fyrir skólann eins og segir á síðunni. Bárður Eyþórsson þjálfari meistaraflokks og skólastjóri Körfuboltaskóla Tindastóls mun sjá um æfingarnar.

Sjá nánar á Tindastóll.is

Fleiri fréttir