Gæðingafimi Þyts á laugardaginn
Gæðingamót Þyts verður haldið á Kirkjuhvammsvelli á Hvammstanga 15. ágúst 2015. Skráning er í gegnum mótasíðu Sportfengs. Lokaskráningardagur er miðnætti í dag, þriðjudaginn 11. ágúst.
Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
- A-flokk gæðinga
- B-flokk gæðinga
- C- flokk gæðinga
- Ungmenni (18-21 árs á keppnisárinu)
- Unglingar (14-17 ára á keppnisárinu)
- Börn (10-13 ára á keppnisárinu)
- Skeið 100m Pollar (9 ára og yngri á árinu)
- C - Flokkur: Flokkur þessi er ætlaður byrjendum og lítið keppnisvönu fólki til þess að byrja að spreyta sig í gæðingakeppninni. Knapi og hestur sem keppir í C- flokki, getur ekki keppt líka í A og B flokk á sama móti. Meira um c flokk hér.
Í fréttatilkynningu frá mótanefnd segir að skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 3.000 kr. fyrir börn og unglinga 2.000 kr. Í skeiðgreinum er skráningargjaldið 1500 kr. á hest. Skráningargjöld greiðast inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 um leið og fólk skráir í gegnum skráningakerfið og viðkomandi keppandi fer þannig inn á ráslista. C flokkur heitir þrígangur í Sportfeng þar sem hann er ekki kominn inn í Kappa.
„Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst. Mótanefnd auglýsir eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framkvæmd mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna. Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir loks í tilkynningunni.