Gæru-hljómsveitir gerðar opinberar

Sú nýbreytni var tekin upp á Skagfirskum Lummudögum í ár að tilkynna hvaða hljómsveitir munu koma fram á Gærunni síðar í sumar. Var það gert á laugardaginn og hafði þá 21 sveit verið valin úr hópi þeirra 62 sem sóttu um. Á fésbókarsíðu Gærunnar kemur fram að Gæran 2013 verði án ef sú flottasta til þessa. Því sé tímabært að merkja hana inn á dagatalið og láta sig hlakka til. Hljómsveitirnar sem fram koma eru:

Alchemla, Baggabandið, Bellstopp, Blind bargain, Contalgen funeral, Dusty miller, Funk that shit, Hymnalaya, Jónas Sig, Kontinuum, Sometime, Stafrænn Hákon, Steinsmiðjan, The Royal slaves, The vintage caravan, The wiched strangers, Tilbury, Úlfur Úlfur, Ultra mega technobandið Stefán, Valdimar og XXX Rottweiler.

Fleiri fréttir