Gærurnar undirbúa nytjamarkaði sumarsins
Eitthvað eru þær komnar með af nytsamlegum hlutum og biðla til fólks að hafa Nytjamarkaðinn í huga við tiltektina, frekar en að urða nytsamlega hluti. Þegar nær dregur opnun markaðarins í sumar verður opið fyrir móttöku en það verður auglýst síðar. Auk þess verður móttaka á munum alla miðvikudaga í sumar milli kl. 17:00 og 19:00. Ef þarf, þá er hægt að fá muni sótta.
Árborg Ragnars, s. 863 6016
Ása Ólafs, s. 847 7837
Dýrunn Hannesar, s. 895 2466
Gréta Jósefs, s. 897 2432
Helga Hreiðars, s. 864 2616
Jónína Sig., s. 895 2564
Olga Geirsd., s. 451 2277
Eftir síðasta sumar gáfu "Gærurnar" ýmislegt til góðra mála, s.s. blakstangir og bocciasett til Íþróttamiðstöðvarinnar, húsgögn í Betri stofuna á Sjúkrahúsinu og jóladúka til Laugabakkaskóla. Þá veittu þær styrki til Málþings um Jakob H. Líndal, dúkkuverkefni 9. bekkjar grunnskólans, Unglistar, Hrossaræktarfélaga Þorkelshólshrepps og einstaklinga.