Gaman saman á ærslabelg

Fjör á ærslabelgnum. Aðsendar myndir.
Fjör á ærslabelgnum. Aðsendar myndir.

Nú er sumarið komið og hvað er þá skemmtilegra fyrir unga sem aldra en að vera úti að leika sér í veðurblíðunni. Víða eru skemmtileg leiktæki semgaman er að skemmta sér í.

Ærslabelgir landsins eru nú væntanlega flestir orðnir uppblásnir og bjóða upp á skemmtilega leiki þar sem allir ættu að geta átt góðar stundir. Eins og allir vita er langskemmtilegast að allir geti leikið sér saman í sátt og samlyndi en því miður hefur borið dálítið á því á ærslabelgnum á Sauðárkróki að ekki séu allir að fara eftir umgengnisreglunum og eitthvað um framkomu sem ekki er í boði á svo skemmtilegu tæki. Foreldrar eru því beðnir um að ræða það við börnin sín hvernig beri að haga sér á belgnum. Ef allir leggjast á eitt ætti þetta að vera fljótt að komast í lag.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir